1/2 Apótek
1/2 Apótek er, eins og nafnið gefur til kynna, hálf uppskrift af litnum Apótek. Rúnar litunarmeistari blandaði Apótek á sínum tíma fyrir Kidda Sig. málara þegar hann var að mála skemmtistaðinn Apótek. Kiddi hafði komið til Rúnars með hrærigraut í fötu og beðið hann um að blanda þannig lit. Úr því varð Apótek, en hann þótti aðeins of sterkur þannig að við breyttum honum í hálfan Apótek.