Hero image
Hero logo

Soffía hjá Skreytum Hús og Slippfélagið hafa tekið höndum saman og hannað nýtt litakort stútfullt af fallegum tónum. Litakortið samanstendur af bæði nýjum og gömlum Skreytum Hús litum, nýju tónarnir voru blandaðir með uppskriftir af gömlum litum til hliðsjónar. Allir ættu að geta fundið lit sér við hæfi enda um 20 liti að ræða. Smelltu hér til að skoða litakortið í heild sinni.

Mjallhvít

Mjallhvít – þessi ekta hvíti! Þið vitið, sem er ekki of hvítur og ekki of gulur. Heldur bara þessi fullkomni félagi með öllum hinum litunum. Ekki kaldur, heldur alveg réttur.

Color image

Mjallhvít

Dömugrár

Dömugrár – mætti lýsa sem pastelgráum, það eru bleikir tónar í honum, hann fer sérlega vel með mjúkum pastellitum.

Color image

Dömugrár

Gauragrár

Gauragrár – er hreinn grár litur, hann er ekki yfirþyrmandi og lætur alla aðra liti njóta sín til fullnustu.

Color image

Gauragrár

Draumagrár

Draumagrár – er draumi líkastur, gengur með öllu, hlýr og tekur utan um heimilið.

Color image

Draumagrár

Ósk

Ljósari útgáfan af litnum Værð. Ljós muskaður, fjólubleikur tónn sem gefur frá sér kærleik og umhyggju. Það er angurværð yfir Ósk sem fer fallega í rými og mildar þau.

Color image

Ósk

Værð

Værð og Ósk eru systralitir. Værð er dekkri af þeim tveimur, notalegur, hlýr og svo endalaust fallegur. Værð er með fjólubláum og brúnum undirtón sem gerir hann svo aðlaðandi.

Color image

Værð

Ylja

Ljósari útgáfan af litnum Ró sem er dekkri, fagur, hlýlegur grátóna litur. Ylja er litur í allt rýmið, heil herbergi eða önnur rými þar sem þú sækist eftir góðu faðmlagi frá rýminu og fallegri hlýju.

Color image

Ylja

Dekkri útgáfan af litnum Ylju. Tónninn er afar hlýr og milli dökkur. Grátóna litur sem fer vel í öll rými ef þú leitar eftir kyrrð og nokkurri dýpt í rýmið án þess að vera of yfirgnæfandi. Fullkomin ró í Ró!

Color image

Rómó 3

Soffía hjá Skreytum hús var að leita að hinum eina sanna gráa lit á veggina inni í svefnherbergi. Hún endaði með þrjár prufur í sama tón, en þó misdökkar. Fengu þeir nöfnin Rómó 1, 2 og 3. Hér til hliðar sjáum við Rómó 3 en hann er dekkstur af Rómó litunum.

Color image

Rómó 3

Mjúkur 3

Soffía vildi búa til nýja tóna með uppskriftina af litnum Skreytum Hús sér til hliðsjónar. Nýju litirnir fengu nöfnin Mjúkur 1, 2 og 3. Hér til hliðar sjáum við Mjúkur 3 en hann er dekksti tónninn í Mjúkur-fjölskyldunni.

Color image

Mjúkur 3

Mildur 1

Soffía vildi búa til nýja tóna með uppskriftina af litnum Lekker sér til hliðsjónar. Nýju litirnir fengu nöfnin Mildur 1, 2 og 3. Hér til hliðar sjáum við Mildur 1 en hann er ljósasti tónninn í Mildur-fjölskyldunni.

Color image

Mildur 1

Mosi 3

Soffía vildi búa til nýja tóna með uppskriftina af litnum Vænn sér til hliðsjónar. Nýju litirnir fengu nöfnin Mosi 1, 2 og 3. Hér til hliðar sjáum við Mosi 3 en hann er dekksti tónninn í Mosa-fjölskyldunni.

Color image

Mosi 3