decorative image

Djúpur

Djúpur

Þessi litur er hinn nýi grái inn í svefnherbergi. Ótrúlega djúpur og seiðandi sem er hentugt þegar þú vilt slaka vel á. Einnig flottur sem „miðpunktur“ í stofu eða borðstofu ef þú þorir ekki alla leið. Hentar vel með ljósum eða dökkum húsgögnum og vefnaði.

Color image
Color image
decorative image

Gott að vita þegar málað er innanhús

  • Loft eru alltaf máluð á undan veggjum, svo ekki fari málning á nýmálaða veggina.
  • Loft eru oftast höfð ljósari en veggir. Þannig skynjum við herbergi stærri og rýmri.
  • Aukin gljái gerir misfellur á yfirborði meira áberandi. Mött málning felur misfellur betur en gljáandi.
  • Ekki er ráðlagt að mála loft með hærra gljástig en 5. Á veggi í herbergjum og stofu er hægt að nota meira t.d. gljástig 10-20.
  • Í eldhúsi og baðherbergi er mælt með enn hærra gljástigi, t.d. Akrýl 25 eða 85 málningu. Hún er með sveppa- og mygluvörn.
  • Augað skynjar liti mismunandi eftir gljáa, og mattari málning gefur ljósari tón.
  • Litir virðast sterkari á stórum flötum.
  • Lýsing hefur áhrif á liti.
  • Litaprufur geta verið afar hjálplegar við val á litum. Hægt að fá litlar handhægar litaprufur í öllum litum og prófa hinar og þessar litasamsetningar.
  • Ekki er allt sem sýnist í litakortum eða tölvuskjám. Fersk litaprufa af litnum gefur raunverulegustu myndina af litnum.
  • Byrjið ekki á nýrri málningardós á miðjum vegg.
  • Rétt hitastig (15-20 °C) og rakastig (40-70 %) skipta máli hvernig til tekst.
  • Lesið vandlega á dósarmiða áður en vinnan hefst.