Drottningablár
Hönnunarteymi Slippfélagsins kom saman og vann í sameiningu að því að finna lit augnabliksins (2016-2017), litinn sem fangaði augnablikið í samfélaginu þá. Teymið var sammála um dökkbláan tón en vinnan við að finna hinn hárrétta tón sem fangar blikið var ekki þrautalaus. Í því ferli var litunardeildin okkar í lykilhlutverki, starfsmenn okkar þar búa að hæfni og reynslu sem er einstök. Eftir að hafa blandað nokkuð margar litaprufur fyrir hönnunarteymið fannst loks hinn sanni blái litur augnabliksins – Drottningablár.