Jarðtónn sem vísar í leirinn úr jörðinni. Minnir mikið á litina sem finnast við hveri hér á Íslandi. Liturinn er úr litakorti Sæja innanhússhönnuður og Slippfélagsins er dásamlega mjúkur brúntóna milli dökkur litur.
Gott að vita þegar málað er innanhús
Loft eru alltaf máluð á undan veggjum, svo ekki fari málning á nýmálaða veggina.
Loft eru oftast höfð ljósari en veggir. Þannig skynjum við herbergi stærri og rýmri.
Aukin gljái gerir misfellur á yfirborði meira áberandi. Mött málning felur misfellur betur en gljáandi.
Ekki er ráðlagt að mála loft með hærra gljástig en 5. Á veggi í herbergjum og stofu er hægt að nota meira t.d. gljástig 10-20.
Í eldhúsi og baðherbergi er mælt með enn hærra gljástigi, t.d. Akrýl 25 eða 85 málningu. Hún er með sveppa- og mygluvörn.
Augað skynjar liti mismunandi eftir gljáa, og mattari málning gefur ljósari tón.
Litir virðast sterkari á stórum flötum.
Lýsing hefur áhrif á liti.
Litaprufur geta verið afar hjálplegar við val á litum. Hægt að fá litlar handhægar litaprufur í öllum litum og prófa hinar og þessar litasamsetningar.
Ekki er allt sem sýnist í litakortum eða tölvuskjám. Fersk litaprufa af litnum gefur raunverulegustu myndina af litnum.
Byrjið ekki á nýrri málningardós á miðjum vegg.
Rétt hitastig (15-20 °C) og rakastig (40-70 %) skipta máli hvernig til tekst.