Your alt text

Viðar grunnmálning

Vörunúmer: 24201000

Viðar grunnmálning er alkýð/línolíu grunnmálning, ætluð til notkunar utanhúss, á við sem á að yfirmála með plast- eða alkýð/olíumálningum. Málningin smýgur vel inn í viðinn, bindur hann vel og tryggir góða viðloðun. Málningin er mjög vatnsfráhrindandi en jafnframt opin gagnvart vatnsgufu. Þannig hleypir hún raka úr viðnum og kemur í veg fyrir uppsöfnun raka. Viðar grunnmálning kemur í veg fyrir blæðingu viðarkvoðu, gróður- og sveppamyndun.

Tæknilegar upplýsingar
Litir Hvítt, Rautt og Gult
Gljástig Matt
Pakkningar 1 og 4 lítrar
Efnisnotkun 6-10 m2/l
Eðlisþyngd 1,35 kg / l
Þurrefni 50% (rúmmál)
Þynnir Terpentína
Áhaldahreinsir Terpentína
Þurrktími 12 klst
Yfirmálun Lágmark: 24 klst
Hámark: Ekkert

Stærð : 1 ltr. - 4 ltr.